Þrátt fyrir töluverða leit finnum við einungis einn fjölmiðil sem greint hefur frá því að ein vél Icelandair nauðlenti í París þann 13. ágúst vegna bilunar í hreyfli. Góðu heilli fór allt vel, rellan lenti heilu og höldnu og var komin í loftið á ný þremur sólarhringum síðar.
Þetta má glögglega sjá á meðfylgjandi skjáskoti af vef Aviation Herald en á þeim vef er haldið utan um öll alvarleg tilvik í flugi á heimsvísu.
Vélin sem hér um ræðir er tæplega tvítug Boeing 757-300 sem er ein af meirihluta flota flugfélagsins sem komin er vel til ára sinna en meðalaldur flugvélaflota Icelandair þegar þetta er skrifað er 24 ár. Það einmitt langstærsta áskorun flugfélagsins næstu áratugi hvernig á að yngja flotann án þess að leita enn einu sinni í sjóði almennings.







