Góðu heilli urðu engin slys á fólki þegar hjólabúnaður einnar vélar Icelandair gaf sig við lendingu í Keflavík þennan daginn. Þetta er í annað skipti í vikunni sem hjólabúnaður Boeing-vélar gefur sig sísona.

Ein vél Icelandair í viðbót úr umferð eftir slys í Keflavík. Það tekur vikur, ef ekki mánuði, að koma þeirri vél í loftið á ný.
Engir fjölmiðlar virðast hafa á hreinu hvers vegna Boeing-vél Icelandair frá Berlín „hlekktist“ á við lendingu í Keflavík. Þýðir það að hjólabúnaðurinn gaf sig við lendinguna eða gekk flugstjóra illa að stjórna vélinni eftir lendingu og ók útaf með þeim afleiðingum að hjólabúnaðurinn gaf sig?
Merkilegt að þetta er í annað skiptið á tæpri viku sem hjólabúnaður Boeing-véla gefur sig eða eyðileggst. Tæp vika er síðan flugmenn Boeing-vélar Air Canada lýstu yfir neyðarástandi eftir flugtak frá Madríd á Spáni þegar hluti hjólabúnaðar brotnaði af og lenti í öðrum hreyfli vélarinnar. Góðu heilli tókst að lenda vélinni þokkalega heilu og höldnu þar líka.
Þetta enn eitt höggið fyrir Icelandair en ljóst má vera að umrædd rella flýgur ekkert að nýju fyrr en eftir vikur og jafnvel mánuði. Burðarvirki vélarinnar gæti hafa skemmst og ljóst má vera af myndum að annar hreyfillinn er illa skemmdur. Svo kostar ábyggilega sitt að endurnýja hjólabúnaðinn.
Mjög brýnt fyrir þetta flugfélag að endurnýja flotann sem allra fyrst. Það kostar jú sitt að halda 22 ára gömlum vélum í loftinu linnulaust.







