Það tók hvorki meira né minna en klukkustund, 60 mínútur, að koma öllum frá borði vélar Icelandair sem brotlendi á Keflavíkurflugvelli fyrr í dag. Það er ekkert minna en hrapalleg frammistaða.

Vél Icelandair sem brotlenti í Keflavík, Heila klukkustund tók að koma fólki frá borði. Skjáskot RÚV
Ef marka má orð forstjóra Icelandair, Boga Nils Bogasonar, tók það heila klukkustund að koma öllum frá borði í vél flugfélagsins sem brotlenti við lendingu á Keflavíkurflugvelli.
„Áhöfnin okkar stóð sig mjög vel og okkar samstarfsaðilar í Keflavík. Um klukkutíma síðar voru allir komnir frá borði.“
Enginn fréttamaður gerði athugasemdir við að það tæki björgunarfólk á Keflavíkurflugvelli klukkustund að koma fólki til bjargar og í skjól.
Gott fólk, góðu heilli var þetta brotlending með besta hugsanlegu móti. Vélin lagðist á aðra hliðina og ekkert gerðist. Skrokkurinn gaf sig ekki og enginn eldur blossaði upp. Báðir möguleikar til staðar þegar níðþung farþegavél fellur skyndilega niður á steinsteypu á ofsahraða. Kannski hjálpaði að húrrandi rigning var í Kefló og lendingarbrautin rennblaut.
En að það taki björgunaraðila KLUKKUSTUND að koma öllum frá borði er 100 prósent falleinkunn fyrir alla sem að björgun komu. Ef illa hefði farið og eldur komið upp við brotlendinguna er óhætt að fullyrða að fáir ef nokkrir hefðu lifað slíkt af með allt björgunarliðið á sniglahraða.
Hvers vegna tók það viðbragðsaðila KLUKKUSTUND að koma öllum frá borði við BESTU HUGSANLEGU AÐSTÆÐUR? Er það ekki spurning sem stöku fréttamenn ættu að spyrja?







