Fjöldi þeirra sem skora á írska lágfargjaldaflugfélagið Ryanair að hefja flug hingað til lands nálgast nú átta þúsund alls en áskorunin er í gangi á vef Facebook.
Þarf ekki að fara í neinar grafgötur með að stór hluti almennings vill meiri samkeppni í flugi til og frá landinu enda sýna útreikningar Fararheill að meðan fargjöld almenn hafa lækkað hjá evrópskum flugfélögum um allt að 20 prósent á liðnu ári verður slíks ekki vart hjá Iceland Express né Icelandair. Þvert á móti eru fargjöld þeirra dýrari en fyrir ári ef eitthvað er.
Hér er vefur áskorenda.






