Tíðindi

Króatía heillar næsta sumar

  25/12/2009maí 17th, 2014No Comments

Ferðalangar á meginlandinu ætla ekki að láta tímabundna kreppu aftra sér frá ferðalögum að því er fram kemur í könnun ferðavefjarins Travelzoo.co.uk. Segjast 42 prósent fleiri ætla sér út 2010 og er Króatía af öllum stöðum að koma sterkast út sem líklegur áfangastaður margra þeirra.

Það skýrist af góðu gengi stærstu gjaldmiðla gagnvart mynt Króatíu, kuna.

Verður forvitnilega að sjá á nýju ári þegar íslensku ferðaskrifstofurnar kynna sína helstu áfangastaði næsta sumar hvort Króatía verður þar á meðal en kreppan hér á landi hefur tekið meiri toll en nokkurn tíma í Bretlandi eða á meginlandi Evrópu.

Króatíu hefur mjög vaxið ásmegin í ferðaþjónustu síðan borgarastyrjaldirnar á Balkan skaganum liðu undir lok. Er engum blöðum um að fletta að landið er stórfenglegt og enn að mestu óspillt enda ferðamenn undanfarin ár og tugi verið fáir.