Það árar illa í ferðaþjónustunni hjá Tyrkjum eins og Fararheill hefur komið inn á áður. Bókanir á sólarstaði landsins ekki helmingur þess sem venjan er og nú allt reynt til að snúa þeirri þróun við. Tyrkir meira að segja farnir að niðurgreiða ferðir erlendra ferðamanna.

Tómlegt um að litast í Bodrum og bókanir ná ekki helmingi þess sem venja er í sumar.
Ferðamálaráðherra Tyrklands hefur nú fallist á að greiða ferðaskrifstofum í Þýskalandi og Austurríki sem bjóða ferðir til landsins allt að 800 þúsund krónur í beinhörðum peningum sem ferðaþjónustuaðilarnir geta notað til að lækka verðið á ferðum sínum almennt og eða boðið tilteknum viðskiptavinum sérkjör eða uppfærslur verði Tyrkland fyrir valinu.
Ábyggilega ekki í fyrsta skipti sem ferðir erlendra ferðamanna eru beinlínis niðurgreiddar en óvenjulegt er það sannarlega.
Ástæða þess að ferðafólk hefur Tyrkland ekki á óskalistanum nú er ótti við hryðjuverk en tíðar viðvaranir um hryðjuverkahættu í landinu hafa birst undanfarna mánuði. Sama staða er uppi á helsta strandstað Egyptalands, Sharm el Sheikh, en þar eru hótel og veitingastaðir jafn tóm og eftir að sprengja grandaði rússneskri þotu þar um slóðir á síðasta ári.







