Stöku einstaklingar þarna úti eru að átta sig á þeim gersemum sem borgir Austur-Evrópu eru svona heilt yfir. Nú er loks móðins að eyða tíma í Búdapest og Gdansk svo tvær borgir séu nefndar þar sem engum leiðist augnablik. Ekki er Búkarest mikið síðri heldur.

Mökkur af glæsilegum byggingum að finna í Búkarest og ekki er verðlagið að skemma neitt heldur.

Mökkur af glæsilegum byggingum í Búkarest og ekki er verðlagið að skemma neitt heldur.

Ólíkt Búdapest og Gdansk þangað sem við höfum komist um hríð í þráðbeinu flugi er Búkarest ekki á áætlun neins flugfélags héðan enn sem komið er. Sem þýðir að við verðum að eyða kvöldstund í skipulagningu til að njóta þar í borg.

Þó ekki ef fimm nætur í september á fjögurra stjörnu hóteli á besta stað miðsvæðis fyrir 120 þúsund krónur á parið er eitthvað sem þér hugnast. Það er pakki sem seldur er nú á vef hins norska Travelbird frá Noregi.

Pakkinn fyrir Norsara kostar heilar 43.600 krónur per haus miðað við tvo saman þann 10. september næstkomandi. Æði ljúft að eyða næstum viku í höfuðborg Rúmeníu fyrir rétt rúmlega 80 þúsund kall. Við hér ekki alveg svo heppin en þar sem fyrirvarinn er góður getur við keypt flug til Osló og heim aftur á þessu tímabili með Norwegian niður í 19.700 krónur per mann. Margföldum það með tveimur og við líka getum dúllast fimm daga í Búkarest kringum 120 þúsund alls fyrir tvo.

Ekki dapurt prógramm fyrir lítinn pening og meira að segja hægt að kalla þetta viku og skottast um Osló dagsstund eða svo líka. Meira hér.