Lággjaldaflugfélagið írska Ryanair hefur loks tekið af skarið og ákveðið að íturvaxið fólk skuli héðan í frá greiða fyrir tvö sæti í vélum þess.
Er þetta fyrsta flugfélagið sem þetta tekur til bragðs en fjölmörg flugfélög hafa gælt við þessa hugmynd um nokkra hríð. Bendir flest einnig til þess að bandarísk flugfélög taki fljótt upp sömu stefnu nú þegar ísinn hefur verið brotinn.
Flugfélagið tók þessa ákvörðun eftir að hafa gert á þessu könnun meðal farþega sinna. Þrjátíu prósent þátttakenda voru á því að fólk í yfirvigt ætti að greiða hærra gjald en ella enda dugar þeim mörgum alls ekki eitt sæti sem svo kemur niður á magurri sessunautum.
Ráð er fyrir gert að sérstakur skattur verði lagður á yfirvigtarfólk en ekki verði farið í svo harkalegar aðgerðir að krefjast greiðslu fyrir tvö sæti að svo stöddu.






