Þriðjudagurinn 25. október reyndist vera sérstakur í meira lagi þegar upp var staðið. Fullyrt skal að aldrei fyrr í Íslandssögunni hafa einn og sama daginn komið fram upplýsingar um að unnið sé að stofnun tveggja nýrra flugfélaga.
En það var reyndin. Snemma í gærmorgun kom fram að tveir ungir athafnamenn væru að skoða leigu á þotu með fólksflutninga til og frá landinu í huga. Seint í gærkvöldi var svo staðfestur orðrómur sem gengið hefur síðustu daga um stofnun nýs stærri flugfélags til höfuðs Icelandair og Iceland Express en að baki því félagi, Iceland Jet, er meðal annarra forstjóri MP Banka og fyrrum forstjóri Iceland Express.
Þetta eru afbragðsfréttir fyrir ferðaþyrsta Íslendinga ef allt gengur að óskum. Ekki þarf að fjölyrða um áhrif þess á verðlag ef fjögur flugfélög bjóða ferðir til sama staðar og líkur verða að teljast góðar að bæði nýju félögin muni fljúga til Danmerkur og/eða Bretlands því þangað fara nálega helmingur þess fólks sem Evrópu heimsækir héðan.
En eins og Fararheill.is hefur ítrekað bent á er enginn skortur á stórkostlegum öðrum áfangastöðum innan Evrópu sem enga fá þjónustu í dag.






