Einn af yndislegri áfangastöðum sem finnast í hinni miklu borg Shanghai í Kína er Midlake Pavilion tehúsið í Yu Yuan garðinum fallega skammt frá markaði sem einnig er kenndur við Yu Yuan.
Tehúsið þetta er staðsett á lítilli eyju á litlu vatni í garðinum umkringt lótusblómum og ys og þys þessarar annars risaborgar hverfur eins og dögg fyrir sólu. Ekki skemmir heldur fyrir að byggingin sjálf er listasmíð eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.
Þarna er te að sjálfsögðu á boðstólnum en kaffiþyrstir finna líka drykki við hæfi. Þá er aðkoman að tehúsinu ekki amaleg yfir furðulega bugðótta brú sem þannig var byggð til að varna óvættum inngöngu en Kínverjar trúðu því að slíkar verur gætu ekki tekið beygjur.
Frá annarri hæð hússins er útsýnið hreint yndislegt. Angan blómanna má auðveldlega finna og virkilega hægt að finna sinn stað í lífinu meðan þar er dvalið. Tónlistarmenn spila fyrir gesti á hefðbundin kínversk hljóðfæri öll kvöld um helgar.
Nafn staðarins á frummálinu er Huxinting Chashi og er velþekktur meðal borgarbúa.





