Þig langar í stutta borgarferð til Mílanó á Ítalíu í byrjun september til að fríkka upp á þreytt sambandið og kveikja gamla neista. En þú ert ekki Júlíus Vífill og peningar eru af skornum skammti. Hvað gerir maður þá?

Flottur kostur í Mílanó en ægilegur verðmunur líka.
Ýmislegt hægt að gera undir sólinni þó ekki séu gildir sjóðir í vörslu lögfræðifyrirtækis í Panama eða á kjörbók í Landsbankanum.
Það fyrsta er að framkvæma verðsamanburð og það gildir bæði um flugið og gistinguna. Kannski sérstaklega gistingu því það er nokkuð grimm samkeppni í fluginu.
Kíkjum á hótelvef Icelandair. Við finnum strax efst á blaði hótel 1. til 4. september sem virðist barasta dágott:

Flott hótel, miðsvæðis og greinilega geysivinsælt líka. Ekkert varið í stuttan skottúr til Mílanó nema gista þokkalega fínt 🙂
En kíkjum þó aðeins á bókunarvef Fararheill áður en við neglum þetta tilboð hjá Icelandair. Hvað finnst þar?

Hmmm. Sama hótel, sama dagsetning en gistingin tæplega 32 þúsund krónum ódýrari!!!
Ekki nóg með það. Við finnum meira að segja lægra verð hjá Booking.com en Icelandair gerir og er þó bókunarvél flugfélagsins frá Booking.
Ekki láta plata þig 🙂







