Það er stór galli í lýðræðisríki þegar fyrirtæki verða of stór. Nógu stór og öflug til að skekkja umræðuna hjá langveikum fjölmiðlum. Eitt slíkt hér á landi er Icelandair.

Allnokkrar vélar Icelandair fagna nú 25 ára afmælinu

Allnokkrar vélar Icelandair fagna nú 25 ára afmælinu

Gott dæmi um þetta að finna á blaðsíðu tvö í Fréttablaði dagsins. Þar er að finna fyrirsögnina „Ítrekuð bilun í nýrri flugvél.“

Þar sagt frá þriðju biluninni á einni viku í Boeing breiðþotu Icelandair. Breiðþotu sem flugfélagið hefur nýverið bætt við flotann til að anna mikilli eftirspurn á ferðum til Íslands.

Blekkingin í frétt FBL, þar sem Icelandair er með allra stærstu auglýsendum, felst í orðunum „nýrri flugvél.“

Það eina nýja við þessa vél Icelandair eru litirnir á vélinni og einkennismerki Icelandair. Þessi „nýja“ vél er annars tæplega sextán ára gömul eins og hin 767 breiðþotan sem félagið fékk nýverið til starfa.

Það er þó ekki eins og þetta sé eina dæmið:

tvHjá mbl.is, þar sem Icelandair auglýsir fyrir tugmilljónir árlega, kalla menn sextán ára vélar „nýjar“ eins og ekkert sé sjálfsagðara. Réttara hefði verið að tala um Tvær gamlar vélar til Icelandair eða bara Tvær vélar til Icelandair.

Enn skondnara í þessu ljósi sú staðreynd að þessar sextán ára gömlu breiðþotur eru unglingarnir í flugflota Icelandair. Allnokkrar vélar flugfélagsins fagna 25 ára afmæli um þessar mundir. Framleiddar á sama tíma og Home Alone tryllti lýðinn í bíóhúsum borgarinnar og hljómsveitin Roxette náði heimsfrægð.

Við lesum kynstrin öll af fréttum um eldgamlan bílaflota landsmanna í fjölmiðlum. Aldrei heyrist múkk um ævafornan flugflota Icelandair…