Tíðindi

Treystirðu þessum fyrir ferðalaginu þínu?

  14/09/2011desember 5th, 2014No Comments

Öllum lesendum Fararheill.is ætti fyrir löngu að vera orðið ljóst að ritstjórn telur margt mega betur fara í ferðaþjónustu hérlendis. Á það víða við og um margt og meðal annars hvernig ferðaskrifstofurnar auglýsa ferðir sínar.

Er það regla fremur en undantekning að ferðir séu kynntar og auglýstar með eins klisjukenndum hætti og framast er unnt og oft á tíðum þannig að lesandinn er engu nær.

Á stundum eru upplýsingarnar líka beinlínis villandi.

Hefur ritstjórn Fararheill vitneskju um nokkra farþega Sumarferða sem ekki gerðu sér grein fyrir fyrr en á staðinn var komið í sumar að auglýstar ferðir til Almeríu á Spáni voru ekki til borgarinnar Almeríu heldur smábæjarins Roquetas de Mar í 20 kílómetra fjarlægð.

Má líkja þessu við að auglýsa í Bretlandi ferðir til Reykjavíkur en planta svo farþegum niður á hótel í Keflavík.

En að sama skapi ber að fagna öllu sem vel eða öðruvísi er gert og það á sannarlega við um auglýsingu Úrval Útsýn vegna ferðar til Dublin á Írlandi á næstunni.

Þar fara fjórir starfsmenn ferðaskrifstofunnar á kostum svo vægt sé til orða tekið og má það vera dauður maður sem ekki hefur örlítið gaman að þessu: