Sekúndubroti eftir að ljóst varð hvaða landsliðum Ísland mætir í riðlakeppni Heimsmeistarakeppninnar í Rússlandi næsta sumar voru fjölmiðlar flestir búnir að fá viðtöl við flugfélögin og ferðaskrifstofurnar og þar öllu fögru lofað með flug og ferðir. En það er heldur klént að spreða fúlgum í flug og gistingu ÁÐUR en ljóst verður hvort fólk fær miða á leikina.

Ævintýri í uppsiglingu. En vertu viss um að fá miða áður en þú eyðir hundruð þúsunda í túr til Rússlands.

Gallhörðustu stuðningsmenn landsliðsins okkar voru fljótir að negla flug um leið og færi gafst á. Icelandair þurfti að bæta við vél samdægurs vegna ásóknar í þessar stuttu pakkaferðir, flug og gisting, til Rússlands í júní og það þrátt fyrir að pakkinn kostaði manninn tæplega 200 þúsund krónur ef tveir ferðuðust saman.

Áhuginn að öllu leyti skiljanlegur enda íslenskt landslið aldrei áður komist svona langt og mun kannski aldrei aftur ná svona langt. Svo verður ekkert leiðinlegt að sjá strákana leika sér að Argentínumönnum 🙂

En svakalega verður nú súrt fyrir þá sem greitt hafa tæpar 200 þúsund krónurnar til Moskvu í 48 stundir að þurfa svo að fylgjast með leiknum á næsta torgi þar sem þeir fá ekki miða á völlinn…

Jafnvel þó stemmarinn á torgum borga meðan á HM stendur sé yfirleitt príma er það varla tilgangurinn með feitum fjárútlátum til Rússlands. Og miðað við að kannanir sýna að allt að 50 þúsund Íslendingar geta hugsað sér að halda til Rússlands til að fylgjast með okkar fólki liggur í augum uppi að aðeins brotabrot þeirra fá miða á völlinn. Samkvæmt KSÍ fá Íslendingar rétt rúmlega þrjú þúsund miða á leik Íslands og Argentínu.

Þar sem fæst okkar eiga hálfa milljón króna undir koddanum til að eyða í tveggja daga dúllerí er skynsamlegast að óska eftir miða á vef FIFA og bóka þá flug eða gistingu ÞEGAR ÞAÐ ER ORÐIÐ LJÓST. Það fæst ekki skorið úr því fyrr en í byrjun febrúar þegar FIFA úthlutar miðum og þar sem eftirspurn er alltaf miklu meira en framboð standa þá vitaskuld margir eftir með sárt enni.

Víst kann það að vera of seint með tilliti til að negla beint flug en það hlýtur að vera illskárri kostur en að standa miðalaus í Moskvu mínútum fyrir leik Íslands og Argentínu. Engar áhyggjur af því að komast ekki á staðinn. Velflest flugfélög Evrópu bjóða flug frá öllum helstu borgum álfunnar og í mörgum tilfellum á gjafverði miðað við það sem Icelandair eða Wow Air bjóða. Nett skoðun á flugfargjöldum frá Brussel, Amsterdam og Berlín til Moskvu fyrir fyrsta leik Íslands og til baka tveimur dögum síðar fást niður í 23 þúsund krónur án farangurs. Og hver þarf mikinn farangur tvo daga í Moskvu? Bættu ofan á það sömu upphæð til Evrópu héðan og heim aftur, sem er víða í boði, og einstaklingur kemst út og heim aftur fyrir 60 þúsund kallinn eða svo. Þá getur viðkomandi eytt hundrað þúsund krónum í flotta gistingu og er samt að koma út á sléttu miðað við farþega Icelandair svo dæmi sé tekið.

Enn betri kostur er þó að taka sumarfríið allt í Rússlandi og sjá alla leiki Íslands í riðlakeppninni og eiga jafnvel möguleika á framlengingu ef Ísland fer upp úr riðlinum. Það er jú frítt að þvælast milli leikvanga innan Rússlands með þartilgerðum passa og það er svo mikið að sjá í landinu að enginn kemst yfir nema fuglinn fljúgandi.

Þú ætlar þó varla að eyða öðrum 200 þúsund kalli til Rússlands ef við komumst upp úr riðlinum eða hvað…