Það þótti „stórfrétt“ fyrir skömmu hjá Fréttablaðinu að Wow Air leggði flug til og frá Miami í Bandaríkjunum tímabundið á ís. Ekki þykir þó fréttnæmt þar á bæ að Icelandair hætti að fljúga til Birmingham á Englandi.
Það er raunin þó reyndar áhugasamir um þær ferðir megi leita lengi að upplýsingum um að flugi til og frá Birmingham verði hætt um miðjan janúar 2018. Um það finnast alls engar upplýsingar á vef flugfélagsins þó enn sé boðið upp á að leita að flugi til og frá bresku borginni langt fram í tímann á vef Icelandair. Þjónustan svo döpur reyndar að í stað þess að tilkynna að flug sé ekki í boði eftir janúar kemur tilkynningin sem sjá má hér til hliðar.
Þar gefið í skyn að brottfararstaður og áfangastaður sé hinn sami þó svo sé alls ekki nema Keflavík og Birmingham sé einn og sami staðurinn í hugum forsvarsmanna Icelandair.
Flugfélagið hefur ekki einu sinni fyrir því að láta samstarfsfélög sín vita. Ferðaskrifstofan GB ferðir auglýsir enn golfferðir til Birmingham næsta vor og sumar með Icelandair.
Galið og lélegt stöff en kemur ekki sérstaklega á óvart. Breska flugfélagið FlyBe hætti sama flugi eftir skamman tíma fyrir nokkrum árum. Þá má halda til haga að Birmingham er ein fátækasta borg Englands og ekki svo ýkja margir þar sem hafa efni á skottúrum til fokdýra Íslands. Þaðan af síður er Birmingham skemmtileg í neinni merkingu orðsins og fjöldi forvitnilegra staða að sjá og njóta á pari við fjölda geirfugla.
Að þessu sögðu á ekki að koma neinum á óvart að flugfélög breyti áætlunum og áfangastöðum sínum ört þessi dægrin. Samkeppnin er morð í flugheimum nú um mundir og sennilega aldrei verið mikilvægara að hver einasta flugleið skili peningum í hús. Ekki hvað síst eftir að hlutabréf í Icelandair féllu því sem næst í ruslflokk fyrr á þessu ári.







