GB Ferðir er lítil ferðaskrifstofa sérhæfð í íþróttaferðum hverju nafni sem þær nefnast. Golf- og skíðaferðir sérstaklega áberandi hjá þeim.Ferðir þeirra flokkast undir að vera í dýrari kantinum og hvorki verð þeirra né áfangastaðir hafa breyst þó rúmur helmingur þjóðarinnar sé ekki jafn loðin um lófanna og fyrir ári.
Á heimasíðu þeirra má sjá nokkrar fullyrðingar sem ekki standast og er það miður hjá einni af dýrari ferðaskrifstofum landsins. Fararheill.is hefur áður skýrt frá að verðlag þeirra á Ginn Resort í Flórída í fyrrasumar var hærra en sem nam þeirri upphæð sem það kostaði að panta slíka ferð sjálfur og er þá vandséð hvað ferðaskrifstofan er að spara almenningi annað en hálftíma vafstur á netinu.
Á vef þeirra nú er eftirfarandi lýsing á Aspen í Colorado:
„[…]Hitt er þó mikilvægara að í Aspen eru bestu fjöll sem að völ er á.“
Afar vandséð hvernig forsvarsmenn GB Ferða komast að þeirri niðurstöðu að fjöllin í Aspen sé þau bestu í víðri veröld. Afskaplega kjánaleg yfirlýsing sem er tóm steypa.
Á vef þeirra um nýjan hótelkost þeirra í London er þessi yfirlýsing:
„[…]Staðsetning hótelsins er fullkomin, aðeins 20 mínútur frá miðborg Lundúna.“
Þetta er sambærilegt því að fullyrða að hótel í Breiðholti væri fullkomið enda aðeins í 20 mínútna fjarlægð frá miðbæ Reykjavíkur. Fáir þvælast til London án þess að eyða lunganum í miðbænum og morgunljóst að hótel svo langt frá er allt nema fullkomið fyrir flesta.






