Lággjaldaflugfélagið Norwegian mun fjölga áfangastöðum sínum frá Íslandi til muna í vetur eins og greint hefur verið frá. Nú þegar upplýsingar um fargjöld liggja að mestu fyrir er óhætt að fara að undirbúa eina aukaferð í vetur. Aukaferð sem ekki setur strik í bankareikninginn.

 Töluvert ódýrara að skjótast til Madríd í vetur en verið hefur.

Töluvert ódýrara að skjótast til Madríd í vetur en verið hefur.

Madríd, höfuðborg Spánar, er einn þessara nýju áfangastaða en það var fyrst í sumar sem okkur gafst færi á reglubundnu áætlunarflugi þangað með Icelandair og Iberia Express. Samkvæmt úttektum okkar hefur meðalverð á flugpakka þangað og heim aftur verið kringum 60 þúsund krónur á mann sem eðli máls samkvæmt er alltof dýrt.

Vandamálið hverfur þó með tilkomu Norwegian. Samkvæmt vef þeirra verður meðalverð á flugi til og frá Madríd með tösku meðferðis kringum 25 þúsund krónur í vetur eða tólf til þrettán þúsund kall hvora leið fyrir sig. Það ekki nema 140 prósent lægra verð en Icelandair og Iberia Express hafa verið að heimta en reyndar þó að sumarlagi. Ekki fæst séð að Icelandair eða Iberia Express haldi áfram beinu flugi til Madríd frá Keflavík lengur en fram í september sé mið tekið af bókunarvefum beggja flugfélaga.