Úttekt Fararheill.is leiðir í ljós að Iceland Express virðist ætla að takast að bjóða hagstæðari flugfargjöld til New York en Icelandair en hið fyrrnefnda hefur flug til Newark flugvallar í júní. Samkvæmt þremur stikkprufum á sömu dögum er Iceland Express tíu þúsund krónum ódýrari að meðaltali.
Borin voru saman verðin á þremur dagsetningum miðað við mismunandi fjölda farþega sunnudaginn 31. janúar 2010. Niðurstöðurnar eru eftirtaldar:
2.júní – 23.júní (1 farþegi í viku)
Iceland Express 62.170 krónur
Icelandair 72.970
Mismunur: 10.800 krónur
21.júlí – 28.júlí (2 farþegar í 2 vikur)
Iceland Express 156.800 krónur
Icelandair 177.940 krónur
Mismunur: 21.104 krónur
2.ágúst – 23.ágúst (4 farþegar í 3 vikur)
Iceland Express 313.600 krónur
Icelandair 373.880 krónur
Mismunur: 60.280 krónur






