Vetrarsól þrá margir og frá Íslandi hæg heimatökin að hoppa beint um borð í vélar sem héðan fljúga til Kanaríeyja. Kjósi fólk aðra staði þarf að hafa aðeins meira fyrir en merkilegt nokk getur það kostar töluvert minna.

Ódýr leið til að njóta vetrarsólar. Mynd
Það á til dæmis við um tíu daga pakkaferð til Möltu í nóvember eða desember gegnum London. Ferðamiðillinn Secret Escapes er að bjóða þessa stundina þann pakka, á flottu hóteli og allt innifalið, fyrir svo mikið sem 95 þúsund krónur á mann miðað við tvo saman. Ef við bætum við algengu verði á flugi til London og frá héðan gæti heildarreikningurinn fyrir Möltupakkann kostað heilar 120 þúsund krónur plús klink til eða frá per mann.
Það brandari fyrir góða ferð á suðlægar slóðir og jafnvel þó hitastigið á Möltu jafnist ekki á við það sem Kanaríeyjarnar njóta er meðalhiti á Möltu í desember samt fjórtán gráður. Sem sagt á pari við fínasta sumarveður á Íslandi. Ekki of heitt og ekki of kalt.
Sjálfsagt að kíkja á þetta hér fyrir áhugasama.







