[orbit]

Það er sá tími ársins þegar hinn risavaxni einkunnavefur TripAdvisor sendir frá sér árlegan lista sinn yfir þau hótel heims sem best og mest þykja meðal ferðamanna.

Sem fyrr eiga vestræn hótel bágt með að fóta sig á þessum fræga lista og af topp tíu hótelunum þetta árið eru aðeins tvö sem ekki eru víðsfjarri okkur hér á Íslandi. Á hinn bóginn fer vegur Maldíveyja vaxandi og á topplistanum eru tvö hótel á einum og sama sandbankanum þar um slóðir. Sem gerir þá litlu eyju væntanlega um leið bestu eyju heims til heimsóknar. Að sama skapi verður að taka höfuðfat ofan fyrir Perú sem einnig á tvö hótel á topp tíu.

Bestu hótel heims 2015 samkvæmt einkunnum ferðalanga á TripAdvisor eru þessi:

♥  Gili Lankanfushu / Lankanfushieyja / Maldíveyjar

♥  Nayara Hotel & Spa / Fortuna de San Carlos / Kosta Ríka

Shinta Mani Club / Siem Riep / Kambódía

♥  Hotel Gresham / Búdapest / Ungverjaland

♥  Belmond Palacio / Cusco / Perú

♥  Cocoa Island by Como / Kókoseyjur / Maldíveyjur

♥  Hotel Alpin Spa / Tux / Austurríki

♥  Al Maha / Murqquab / Sameinuðu arabísku furstadæmin

♥  Estalagem St Humbertus / Gramado / Brasilía

♥  Tambo del Inka / Urubamba / Perú