Eitthvað er rotið í herbúðum ferðaskrifstofunnar Heimsferðir. Föstudaginn 20. september auglýsir fyrirtækið sértilboð á borgarferð til Madríd á Spáni fyrir 39.900 krónur á mann. Daginn eftir kostar nákvæmlega sama ferð 44.900 krónur á vef þeirra.

Kannski er starfsfólk þessa fyrirtækis það vel launað að fimm þúsund kall til eða frá skiptir engu en fyrir stóran hluta þjóðarinnar er fimm þúsund krónur enn brúkleg upphæð. Sérstaklega eins og í þessu tilfelli þegar tilboð miðast við tvo saman en þannig er munurinn á þessum tveimur tilboðum orðinn tíu þúsund krónur.

Þegar þetta er skrifað er orðið of seint að vara fólk við því umrædd ferð er uppseld. Ritstjórn Fararheill vonar bara að viðkomandi hafi fengið ferð sína á 39.900 því ella er líklega hægt að sækja mál á hendur Heimsferðum.

Mesta syndin við slíkt framferði er að Heimsferðir eru alla jafna mun líklegri til að bjóða okkur ýmis ágæt sértilboð á ferðum sem sjaldan eða aldrei finnast hjá öðrum ferðaskrifstofum hérlendis. Þriggja nátta Madríd-ferð Heimsferða þann 10.október var til dæmis rúmlega tíu þúsund krónum ódýrari en sams konar ferð hjá Vitaferðum þann 31. október.

Samt eins og menn séu ekki mikið að taka til í sínum ranni en nýlega greindum við frá öðru vafamáli Heimsferða. Í haustbæklingi þeirra eru auglýstar ferðir til Billund og Kaupmannahafnar í „haust, vetur og vor“ frá 9.900 krónum á mann aðra leið með sköttum. Sem er frábært tilboð af þeirra hálfu og sannarlega eru til sæti á þessu lágmarksverði. En eingöngu fram í næsta mánuð miðað við vef þeirra. Engar ferðir eru í boði í vetur eða vor.

Skjáskot af vef Heimsferða kl.8 þann 21. október.

Skjáskot af vef Heimsferða kl.8 þann 21. október.

Auglýsing Heimsferða daginn áður í Fréttablaðinu

Auglýsing Heimsferða daginn áður í Fréttablaðinu