Óvíst hversu margir þarna úti eru áhugasamir um að heimsækja Úkraínu. En sé áhugi til staðar er Wizz Air nú að bjóða aldeilis fráleit tilboð frá London til borgarinnar Lviv í því ágæta landi.

Miðborg Lviv í Úkraínu er ferðalag aftur í tímann. Tiltölulega falleg borg á úkraínskan mælikvarða og oft líkt við Prag í Tékklandi.
Úkraína er töluvert vinsælt ferðamannaland þessi dægrin og fyrir því helst sú ástæða vinsæl þáttaröð um Chernobyl-slysið plús sú staðreynd að nú er hægt að heimsækja það svæði þokkalega öruggt án þess að koma heim geislavirk og vangefin.
Ekki svo að skilja að Lviv sé nálægt Chernobyl. Alls ekki. En þetta er ekkert krummaskuð. Hér búa næstum átta hundruð þúsund manns og því sæmilegt líf og fjör í bæ og töluvert að sjá og upplifa í grennd þó ekkert af því fari í heimsmetabækur.
En að komast þessa leiðina fyrir heilar 30 þúsund krónur er næstum heimsmet. Flug fram og aftur frá London býðst nú, klúbbmeðlimum Wizz Air og allir geta gerst meðlimir frítt á netinu, niður í fimm þúsund íslenskar krónur fram og aftur.
Miðað við að við komumst yfirleitt þokkalega til London og heim aftur fyrir 20 til 25 kallinn má sæta lagi og heimsækja Úkraínu á fínum tíma fyrir heilar 30 þúsund krónur. Ekki skemmir heldur að fá lönd eru ódýrari heimsóknar…







