Hvað er skynsamlegt að gera ef þú ert að selja vöru sem er á síðasta söludegi eða því sem næst? Erlendis er stöffinu hent á útsölu prontó með 70% afslætti en hér heima hefur það almennt ekki verið raunin. Um að gera að græða hundrað prósent fram í rauðann dauðann og henda svo klabbinu í ruslið.

Svo virðist sem einhver hjá ferðaskristofunni Úrval Útsýn hafi nú kveikt á eins og einni peru. Í Fréttablaði dagsins er heilsíðuauglýsing frá ferðaskrifstofunni þar sem allnokkrar ferðir og flug eru einmitt með FEITUM AFSLÆTTI.

Húrra segjum við bara. Er ekki gáfulegra að taka smátap og gleðja tiltekna einstaklinga og fá þannig plús í kladdann en að heimta fullt verð fram að brottför og senda þotu af stað út í heim með fjölda auðra sæta?

Hjá ÚÚ hafa menn tekið þetta inn á sig. Eða hver kvartar yfir tíu þúsund kalli aðra leiðina til Alicante eða Almeríu þó fyrirvarinn sé skammur? Enginn.

Meira svona 🙂