Fyrri hluta næsta sumars er töluvert ódýrara að fljúga héðan til Barcelona með spænska lággjaldaflugfélaginu Vueling en samkeppnisaðilanum Wow Air samkvæmt úttekt Fararheill. Þriðja flugfélagið sem þá leið flýgur, Icelandair, er úti á þekju í samanburði.

Vueling með vinning fram að miðju sumri en þá tekur að halla undan fæti.
Góðu heilli er almenningur að átta sig á því að það borgar sig oft að tryggja flug og ferðir með eins góðum fyrirvara og mögulegt er ætli fólk á annað borð að fá flug á lágu verði. Það virðist vera að skila sér til Barcelona því hjá bæði Vueling og Wow Air er ekki mikið eftir af sætum á því sem talist getur gott verð til spænsku borgarinnar. Sömu sögu er að segja hjá Icelandair sem útskýrir afar hátt verð á þeirra flugi.
Við tókum þrjár stikkprufur í júní, júlí og ágúst þar sem dvalið var tvær vikur í senn í Katalóníu og bárum saman. Miðað er við allra lægstu fargjöld sem þýðir engan farangur hjá Vueling eða Wow Air annan en handfarangur en hjá Icelandair er sem fyrr ein stór taska innifalin í verði fram og aftur.
Við reyndar skiljum ekki alveg hvers vegna Icelandair auglýsir Barcelona sem áfangastað og gefur svo upp dagsetningar þar sem ekki er um beint flug að ræða. Oft er millilent í London, París og jafnvel Kaupmannahöfn áður en för er áfram haldið til Barcelona. Það útskýrir líka hvers vegna fargjöld Icelandair eru engan veginn samkeppnishæf við lággjaldaflugfélögin.
* Verð kórrétt kl. 11.45 þann 29. nóvember 2014. Leitað samtímis hjá öllum þremur aðilum og tekið lægsta verð með öllum sköttum og gjöldum.







