Patagónía, Buenos Aires, Salta, Mar de Plata, Foz de Iguacu. Enginn skortur á súperskemmtilegum stöðum í Argentínu en illu heilli er yfirleitt skrambi dýrt að komast alla leiðina þangað. En ekki alltaf.

Vissulega krókaleið en á þessu verði alla leið til Argentínu er það bara ljúfur krókur.

Svissneska flugfélagið Edelweiss er þessi dægrin að bjóða upp á ljómandi góð tilboð á flugi frá Sviss og þráðbeint til Buenos Aires í Argentínu. Lægstu fargjöld í nóvember og fram til mars á næsta ári allt niður í 68 þúsund krónur íslenskar.

Ólíkt íslenskum flugfélögum sem heimta húsið og börnin fyrir kaffi og kleinur á ódýrasta farrými fer Edelweiss aðeins öðruvísi leiðir. Bæði handfarangur og innrituð taska innifalin, afþreyingarkerfi um borð og matur líka 🙂 Í því ljósi eru 35 þúsund krónur aðra leið frá Sviss til Argentínu bara súpertilboð.

Hvers vegna segjum við frá þessu?

Jú, svo vill til að við komumst léttilega til Sviss og heim aftur með easyJet og það, samkvæmt úttekt okkar, allt niður í tólf þúsund krónur á haus þegar best lætur næstu mánuðina.

Ef við látum okkur hafa þá millilendingu er Buenos Aires okkar fyrir svo mikið sem tæpar 90 þúsund krónur fram og aftur. Það er tilboð sem vert er að gera sér ferð eftir að okkar mati ef Argentína á annað borð heillar.