Spurning hvort ríkisstjórn Íslands þurfi ekki að fara að senda okkur hér þá milljarða sem Neytendastofa fær árlega fyrir að gæta þess að á okkur sé ekki svindlað og svínað. Því ekki hefur Neytendastofa sinnt því hlutverki frá stofnun.

Aðventuferðir frá 4.999 krónum segir Wow Air. Það tóm lygi og þvættingur. Skjáskot
„Þessar eru uppáhalds á aðventunni! Flug frá 4.999 krónum.*”
Svo hljómar auglýsing Wow Air þessi dægrin en það batterí er eins og flestum er kunnugt nú undir nýrri stjórn. Það er sem sagt ekki Skúli Mogensen lengur sem beitir kolólöglegum trixum í markaðssetningu heldur lífeyrissjóðsfélagið Icelandair.
Hvað er svo trixið? Jú, taktu eftir stjörnunni í yfirlýsingu Wow Air. Það þýðir undantekningarlaust takmarkanir sem aftur þýðir að fólk verður að lesa smáa letrið til að fá allan sannleikann.
Og hvað sjáum við þar? Þetta:
„*Verð miðast við Wow Basic aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró. GILDIR AÐEINS EF BÓKAÐ ER FLUG FRAM OG TIL BAKA.”
Hvað athugavert við þetta? Jú, fyrir það fyrsta gengur Netgíró út á að dreifa greiðslum með tilheyrandi vöxtum og kostnaði svo fargjaldið er aldrei 4.999. Í öðru lagi tiltekur Wow Air ekki að inn í þetta vantar svokallað bókunargjald upp á tæpan þúsundkall. Það tekur jú áratugi fyrir staffið að setja bókun inn í kerfið. Í þriðja lagi miðast verðið við að einnig sé keypt flug heim aftur. Slíkt kostar undantekningarlítið mun meira en útferðin og það líka reyndin hér eins og hver og einn getur gengið úr skugga um með innliti á vef Wow Air. Að síðustu eru fáir Íslendingar að skottast í aðventuferð og ekki kaupa jólagjafir á 40 prósent lægra verði en hér heima. En þá þarf að kaupa farangursheimild undir draslið og slíkt kostar fimm þúsund kall aukalega að lágmarki hjá Wow Air.
Með öðrum orðum; auglýst lág fargjöld Wow eru svindl út í eitt. Fátt virðist breytast þó Bogi Nils taki við taumum af Skúla Mog. Alltaf skal reyna að svindla á fólkinu…







