Hvað skal gera ef þig og þína langar „eitthvað“ út í september, desember eða jafnvel í maí á næsta ári? Bara eitthvað sem ykkur hefur ekki hugkvæmst sjálfum og kostar ekki hand- og fótlegg.

Aðeins einn flugmiðill finnur fyrir þig flug til og frá hinum ýmsu stöðum heims án þess að þú leitir sérstaklega að. Skjáskot
Vitum ekki um ykkur þarna úti en við hér hjá Fararheill erum ákaflega spennt fyrir að negla ekki ferðalög okkar niður í frumeindir í spennitreyju. Allra best að hafa ferðalagið eins opið og kostur er og láta lífið koma manni á óvart 🙂
En það er ekki mjög auðvelt er það? Ekkert er á flugvefmiðlum að græða því þeir birta almennt ekkert nema það sem leitað er sérstaklega eftir. Með öðrum orðum; ef draumurinn er Ísland – Ystad í október þá er ekkert vandamál til staðar. Allir finna fyrir þig gott flug á lágmarksverði.
En hvað gerist ef þig langar bara „eitthvað“ um miðjan næsta desember? Ef við fljúgum héðan til Osló, Helsinki, Parísar eða Washington, hvaða spennandi og ódýri áfangastaður er í boði frá þessum borgum? Á hvaða verði og hvaða tímum?
Okkur vitandi er aðeins einn vefmiðill þar sem ekki þarf að negla niður áfangastað og í staðinn færð þú grófa hugmynd um kostnað og mögulega áfangastaði frá einum eða öðrum staðnum: Google flights. Ólíkt öllum öðrum getur þú kannað núna hvert er hægt að komast með flugi frá Jóhannesarborg í Suður Afríku eða Tuurku í Finnlandi þann 8. janúar 2019 og hvað það kostar.
Vissir þú til dæmis að frá Frankfurt kemstu til Tenerife fyrir rúman þrettán þúsund kall í desember? Eða frá Osló til Moskvu í september fyrir þrettán þúsund kall? Eða frá Montreal til Cancún í Mexíkó fyrir 31 þúsund kall? Og svo framvegis og svo framvegis.
Um að gera fyrir ævintýragjarna að fletta Google Flights. Ekki aðeins er sá fljótastur allra að finna verð til hinna og þessa staðanna heldur og er hægt að treysta þeim vef 99% eða svo. Google væri nefninlega ekki svo vinsæll ef ekki væri á hann að treysta 😉 Trixið er að gefa aðeins upp brottfararstað en skilja áfangastað eftir auðan. Þannig koma upp allir áfangastaðir frá þessum sama stað og lægsta verð í þokkabót.
Þokkalega brilljant ef þú spyrð okkur 😉







