Milli 10 og 15 þúsund krónur þykir meirihluta eðlilegt og sanngjarnt verð fyrir flugfar aðra leiðina til London samkvæmt nýrri könnun Fararheill.

Hinn almenni neytandi telur eðlilegt að greiða milli 10 og 15 þúsund fyrir flugfar aðra leið til London
Það er mat 62 prósenta þeirra sem þátt tóku í síðustu vefkönnun Fararheill.is eða stór meirihluti en alls tóku 235 aðilar þátt. 21 prósent svöruðu því til að eðlilegt væri að greiða hærra verð en það meðan 17 prósent töldu prís undir tíu þúsund krónur eðlilegra en ekki.
Forvitnaðist ritstjórn Fararheill um þetta hjá lesendum í kjölfar þess að nýliðin er kannski sú vika sem hvað grimmust samkeppni hefur verið meðal íslenskra flugfélaga í kjölfar tilkomu Wow Air en það flugfélag hóf starfsemi í gær.






