Tíðindi

Fall fararheill hjá Wow Air?

  03/06/2012No Comments

Báðar fyrstu vélar flugfélagsins Wow Air, sem hóf formlega starfsemi í dag, voru nokkuð á eftir áætlun frá Keflavíkurflugvelli. Sú fyrri til London fór klukkustund of seint af stað meðan sú seinni til Kaupmannahafnar reyndist 30 mínútum of sein í loftið. Stóra spurningin er hvort fall reynist nýja flugfélaginu fararheill þegar upp er staðið.

Stór dagur fyrir íslenska neytendur í dag þegar fyrstu vélar Wow Air hófu sig til flugs

Fór lítið fyrir í fjölmiðlum að dagurinn var tiltölulega stór fyrir neytendur á Íslandi þegar fyrstu vélar hins nýja flugfélags hófu sig til flugs frá Keflavík.

Því miður fyrir farþega Wow fyrsta daginn urðu töluverðar tafir á að vélarnar færu í loftið eins og sjá má á vef Keflavíkurflugvallar. Fyrri vél flugfélagsins lagði ekki af stað til London fyrr en klukkan 18:31 þegar áætlun var 17:40. Seinni vélin til Kaupmannahafnar fór í loftið 18:15 eða réttum hálftíma eftir auglýsta brottför.

Fall er fararheill segir í Heimskringlu Snorra Sturlusonar og spurning hvort það eigi við um flug Wow Air en stundvísi flugfélaga skiptir vitaskuld miklu máli. Ekki síst nú þegar mörg þau flug sem í boði eru til og frá Íslands eru kvöld og næturflug.

Ritstjórn Fararheill getur vottað að vélar hins nýja flugfélags eru afskaplega fínar og þjónusta um borð góð. Sætapláss er meira en hjá samkeppnisaðilanum Iceland Express eða 32 tommur á móti 28 tommum. Það hljómar lítið en finnst sannarlega þegar líða fer á flug til Evrópu.