Skip to main content

ÆÆÆ. Ein rella Wow Air assgoti sein á leiðinni til landsins þennan daginn. Vél Wow Air frá Amsterdam hvers áætlun gerði ráð fyrir lendingu í Keflavík klukkan 13.45 snerti svo okkar ástkæru fósturjörð ekki fyrr en klukkan 17.33. Það þýðir bætur fyrir alla farþega sem bera sig eftir.

Vélin atarna rétt tæpum fjórum klukkustundum á eftir áætlun til landsins og það vita þeir sem með fylgjast að þar með er strax komin bótakrafa á flugfélagið. Bætur byrja að tikka um leið og rella er þremur tímum of sein á áfangastað samkvæmt Evrópureglum.

Í þessu tilfelli nema bæturnar um 40 þúsund krónum eða svo á þá sem leita réttar síns. Byrja þarf á að forvitnast hjá Wow Air hvort þeir hendi ekki seðlunum inn á reikning hið snarasta. Líkurnar á því engar svo næsta skref er skeyti á Samgöngustofu sem sker úr um málið og kemst næsta örugglega að því að Wow Air er bótaskylt.

Það er allavega ekkert að finna á netinu um ástæður þess að vélar frá Amsterdam hafi tafist eitthvað almennt þennan daginn. Þaðan af síður að vesen hafi verið í Keflavík. Líklega bara klúður hjá Wow Air.