Það er ekki tekið út með sældinni að stjórna flugumferð á stórum flugvöllum heimsins og þrátt fyrir tól og fullkomnustu tækni geta mistök samt sem áður orðið hvenær sem er.

Óhuggulegt atvik á vinsælum flugvelli um síðustu helgi. Skjáskot

Óhuggulegt atvik á vinsælum flugvelli um síðustu helgi. Skjáskot

Þetta má glögglega sjá á meðfylgjandi myndbandi sem tekið var á El Prat flugvellinum í Barcelona.

Myndskeiðið er eins og kynning á næstu hasarmynd frá Hollywood. Þar má sjá rússneska þotu koma inn til lendingar þegar þota frá Aerolineas Argentinas skyndilega ekur úr á brautina.

Rússneski flugstjórinn góðu heilli með hausinn í lagi og náði að hefja vél sína til flugs að nýju en ekki mátti miklu muna.

Þetta er nákvæmlega sams konar atvik og olli versta flugslysi sögunnar á Tenerife 1977 þegar vél sem var að lenda lenti á vél á sömu braut sem var að gera klárt fyrir flugtak. Báðar vélar sprungu með þeim afleiðingum að 583 farþegar létust.

Kannski er lág slysatíðni í flugi einfaldlega vegna heppni nú þegar sífellt fleiri flugmenn kvarta yfir lengri og lengri vinnutíma og síþreytu út í eitt.