Dabbadona! Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, tók við taumum hjá fyrirtækinu þegar allt var á leið til helvítis í lok ágúst 2018. Þá stóð eitt stykki bréf í Icelandair í 7,1 á íslenska hlutabréfamarkaðnum. Nú einu og hálfu ári síðar er hvert bréf í Icelandair metið á 7,4.

Stór orð, litlar efndir…
Aldeilis sérfræðingur hér á ferð í forstjórastólnum. Feitt lærður viðskiptafræðingurinn hefur aðeins fært virði Icelandair upp um nokkra aura á einu og hálfu ári og það frá algerri botnstöðu á sama tíma og fleiri ferðamenn sækja Íslandið heim en nokkru sinni OG helstu samkeppnisaðilar deyja drottni sínum. Þar eigum við auðvitað við Wow Air og Primera Air sem bæði hættu starfsemi á síðasta ári sem ætti að hafa haft gríðarleg plúsáhrif hjá Icelandair. En ekki er það að sjá.

Við sögðum strax og Bogi Nils var ráðinn að hann væri hluti af vandamálinu. Svo virðist sem það sé að standast. Allavega sé miðað við hlutabréf fyrirtækisins á þokkalegum gósentíma.
Sem kæmi okkur náttúrulega ekkert við ef Icelandair væri 100% í einkaeigu. Því miður er það ekki raunin. Lífeyrissjóðir okkar landsmanna eiga meirihluta í Icelandair. Sem merkir að lélegur stjóri þar samsvarar lægri lífeyrissjóðsgreiðslum til þín.
Út með manninn!







