Sorrí Stína en þetta er einfaldlega ekki boðlegt. Ferðaskrifstofan Úrval Útsýn býður nú aftur töluvert lægra verð á sams sólarlandapakka og auglýstur var á sérstakri rýmingarsölu fyrir nokkrum dögum síðan.

Vikudvöld í Alcudia á töluvert lægra verði nú en var í boði á sérstakri rýmingarsölu fyrr í vikunni...

Vikudvöld í Alcudia á töluvert lægra verði nú en var í boði á sérstakri rýmingarsölu fyrr í vikunni…

Óhætt er að fullyrða að í hugum flestra er rýmingarsala því sem næst hæsta stig útsölu á vörum og þjónustu. Slík sala kemur yfirleitt í kjölfarið á hefðbundum útsölum þegar ekki hefur tekist að selja allt sem þurfti. Afslættir eru þannig yfirleitt undantekningarlaust hærri á rýmingarsölu en hefðbundinni útsölu.

Fyrir nokkrum dögum auglýsti Úrval Útsýn sérstaka „48 stunda rýmingarsölu“ með pompi og prakt á tilteknum sólarferðum nú í ágúst.

Við höfum þegar fjallað um að ekki fyrr var rýmingarsölunni lokið en ferðaskrifstofan bauð miklu lægra verð á sams konar sólarpakka en í boði var á rýmingarsölunni sjálfri. Nú gerist það aftur.

Á „rýmingarsölunni“ fyrr í vikunni bauðst fjögurra manna fjölskyldu að skjótast í viku til Alcudia á Mallorca og gista þar á þriggja stjörnu Sol Alcudia Center. Verðmiðinn á rýmingarsölunni: 69.900 krónur á mann eða 279.600 krónur alls.

Nú getur sama fjölskylda hins vegar fundið nákvæmlega sömu vikuferðina til Mallorca fyrir 59.900 krónur á mann eða alls 239.600 krónur. Það er sem sagt 40 þúsund krónum ódýrara að kaupa sólarferð hjá Úrval Útsýn EFTIR að rýmingarsölu lýkur!!!

Þetta segir aðeins eitt: Ekki endilega taka mark á rýmingarsölum, sprengidögum, sólarlottói eða öðrum „útsölum“ Úrval Útsýn. Strax og þeim lýkur virðist nefninlega bjóðast enn lægra verð á tilteknum sólarpökkum.