Á mánudaginn var auglýsti ferðaskrifstofan Úrval Útsýn heilmikla „rýmingarsölu“ á sólarpakkaferðum í 48 stundir en þar áttu áhugasamir að geta gert hin mestu kostakaup. Útsölunni nú lokið en í minnst einu tilfelli er nú hægt að fá pakkaferðina á töluvert lægra verði en á „rýmingarsölunni.“

Rýmingarsölutilboðið á mánudaginn var. Skjáskot
Þar um að ræða vikuferð fyrir tvo fullorðna og tvö börn til Mallorca frá 23. ágúst til 30. ágúst og þar gist á hinu þriggja stjörnu Vista Club. Ofurtilboðið á „rýmingarsölunni“ var 69.900 krónur á haus eða 279.600 krónur alls á fjölskylduna.
Allt í lagi. Ekkert hræðilegt verð á sólarferð síðla sumars þó fyrirvarinn sé næsta enginn.
Öllu ömurlegra að þessi sama ferð fyrir sömu fjölskyldu finnst nú á bókunarvef Úrval Útsýn þessa sömu dagsetningu fyrir 63.900 krónur á kjaft. Alls 255.599 fyrir fjölskylduna.
Það reynist því tæplega 25 þúsund krónum ódýrara að kaupa pakkaferðina til Mallorca EFTIR að sérstöku tilboði lýkur!!!
Svo er fólk hissa að ritstjórn Fararheill sé hissa á að fólk eigi viðskipti við þessa ferðaskrifstofu Pálma Haraldssonar sem oft hefur svindlað og svínað gegnum tíðina.

Töluverð verðlækkun um leið og „rýmingarsölunni“ lauk. Skjáskot







