Við Íslendingar ekki sérstaklega þekktir fyrir að plana mikið langt fram í tímann. Það til dæmis þess vegna sem við greiðum hundruð prósenta hærra verð fyrir gistingu á vinsælum tímum í vinsælum borgum.

Yfir sex milljónir sækja heim Októberfest í Munchen hvert einasta ár. Líkurnar á að finna hagstætt verð á gistingu eru engar.

Fengum skeyti fyrr í þessari viku. Fjórir einstaklingar sem hefur dreymt um vikutúr á Októberfest í Munchen í Þýskalandi um áraraðir ætluðu loks að láta draum verða að veruleika þetta árið. Flugið niðurneglt og allt virtist tómar rósir.

Alas, ekki alveg.

Í skeytinu var leitað til okkar sökum þess að hópurinn fann enga sæmilega gistingu á „eðlilegu“ verði eins og það var kallað. Sex skitnir dagar á meðalhóteli í borginni við upphaf Októberfest fannst ekki undir þrjú hundruð þúsund krónum fyrir tvo saman.

Skemmst er frá að segja að aðeins eru sex mánuðir eða svo áður en blásið verður til leiks á stærstu og vinsælustu bjórhátíð heims á Októberfest í Munchen. Sem kaldhæðnislega hefst, eins og alltaf, í september.

Hér gæti skólabókarstærðfræðin komið að notum ef fólk leggur haus í bleyti oggustund. Munchen er ekki frámunalega stór borg og er almennt, að frátöldu Októberfest, ekki mikið á ratsjám ferðafólks. Það aftur þýðir að gisting hér er af skornum skammti alltaf. Margfaldaðu gistingu af skornum skammti með rúmlega SEX milljónum ferðamanna sem hingað koma til að sturta í sig bjór og pulsum yfir Októberfest og leggðu svo saman.

Við höfum sagt áður og ítrekað; ef þig langar á Októberfest og vilt vera í þokkalegu nágrenni við hátíðarsvæðið þarf að negla gistingu ár fram í tímann til að þokkalegt sé.

Við gátum aðstoðað umræddan hóp að hluta því við fundum gistingu á fjögurra stjörnu hóteli í 20 mínútna fjarlægð frá hátíðarsvæðinu niður í 118 þúsund krónur fyrir sex daga gistingu. Ekkert gefins auðvitað en með litlum fyrirvara aldeilis bærilegt. Því það er auðvelt að ganga úr skugga um að fjögurra stjörnu gisting í sex nætur í Munchen í byrjun Októberfest kostar að meðaltali 300 þúsund krónur eða vel yfir 50 þúsund kall per nótt. Bíddu fram í ágúst og sama gisting kostar þig 400 þúsund kall.

Þar sem einn skríbenta Fararheill negldi einmitt slíka gistingu með árs fyrirvara árið 2014 og greiddi 88 þúsund krónur fyrir má ljóst vera að með því að plana með alvöru fyrirvara má spara sér fleiri hundruð þúsundnæ sta auðveldlega 😉