Hver sá sem ferðast um Mexíkó utan þessara helstu ferðamannasvæða kemst fljótt að raun um að þrátt fyrir allt er Mexíkó þriðja heims ríki og það í orðsins fyllstu. Efist einhver ættu þessar myndir af lögreglunni í Cancún að taka af allan vafa.

Lögga með bögg? Sýndu brjóstin og lit og allt verður gott. Skjáskot
Fjölmiðillinn El Diario de Yucután sem fjallar um málefni líðandi stundar á hinum sívinsæla Yucutan skaga þar sem finnast allra helstu ferðamannastaðir Mexíkó, greinir frá því að lögreglumönnum sem falið var að að skipa berrössuðum erlendum stelpum á ströndinni, í föt hið snarasta gekk það verkefni heldur illa.
Geirvartan á lítt upp á pallborð í Cancún eða Playa del Carmen sem eru allra vinsælustu strandstaðir Mexíkó. Þar engum heimilt að bera sig umfram það sem „eðlilegt“ getur talist og í Mexíkó er það bolur og stuttbuxur að lágmarki svo enginn hringi á lögguna.
En bandarískar stúlkur sem gerðust svo „djarfar“ að hoppa um á ströndinni með brjóstin ber fengu auðvitað kvörtun um leið og lögreglan, sem tekur sér yfirleitt fleiri klukkustundir að verða við neyðarköllum, var komin á staðinn á augabragði til að skakka leik.
Því miður fyrir laganna verði þá voru allnokkrir á svæðinu með snjallsíma og myndavélar þegar til átti að taka. Og í ljós kom að fátækir lögreglumennirnir gátu bara ekki fyrir nokkurn mun tekið hart á bandarísku berbrjósta stúlkunum. Þvert á móti eiginlega, það tók þrjár mínútur áður en lögreglumennirnir voru farnir að pósa með berbrjósta stelpunum á ströndinni.
Allt ósköp eðlilegt í þessu landi…







