Það er velþekkt trix í vefheimum að beita skærum litum hvers kyns til að beina athygli fólks að ákveðnum hlutum á vefsíðum. En það er stundum líka hægt að nota slíkt til að blekkja.

Bláa boxið á að standa fyrir lægsta verð. En gerir ekki alltaf. Skjáskot
Nú skal ósagt látið hvort Icelandair er að reyna að blekkja eða hvort um villu er að ræða en Fararheill er að rekast á nokkur dæmi þess á bókunarvef flugfélagsins að það sem á að vera lægsta fargjald, alltaf merkt bláum lit, er ekki endilega lægsta verð.
Þetta má glöggt sjá á myndinni hér til hliðar. Þar gefur að líta fargjöld Icelandair til Boston í júní. Bláa boxið á að benda á lægsta verð þessa leið þann mánuð sem skoðaður er og í þessu tilfelli finnst það sjálfan þjóðhátíðardaginn 17. júní. Verðið 50.150 krónur.
Gallinn sá að hafi fólk ekki augun hjá sér er auðvelt að staðnæmast ekki við 11. eða 12. júní. Þá er nefninlega hægt að fljúga á lægra verði eða niður í 45.115 krónur.
Við höfum svo sem áður bent á villur af þessu tagi enda ekki í fyrsta skipti sem við komum auga á slíkt. Því oftar sem slíkt finnst því minni eru líkurnar á að um mistök sé að ræða.







