Þurfi ferðafólk ekki að rífa með sér tvær stórar töskur á leið til New York þetta sumarið er töluvert ódýrara að bóka flug fram og aftur með Delta en Icelandair.

Sé ekki þörf á miklum farangri reynist Delta bjóða betur en Icelandair. Samsett mynd
Það sýnir ný úttekt Fararheill. Við leituðum að lægsta verði hjá báðum flugfélögum fram og aftur til New York alla sumarmánuðina og lægsta verð finnst alltaf hjá bandaríska flugfélaginu. Sérstaklega í júlí er munurinn sláandi eins og sjá má á meðfylgjandi töflu.
Hér skal þó hafa í huga að á almennu farrými Delta leyfist fólki aðeins að taka með eina 23 kílóa innritaða tösku en á sama farrými hjá Icelandair má hver farþegi taka með tvær slíkar. Langi fólk að bæta við tösku á almennu farrými Delta bætast þrettán þúsund krónur strax ofan á fargjaldið.
Þetta getur skipt máli sé hugmyndin að versla eins og enginn sé morgundagurinn. Fyrir aðra sem ekki hafa hugsað sér að birgja sig upp dugar ein taska yfirleitt mætavel. Sé þörf á meiri farangri finnst lægra verð hjá íslenska flugfélaginu í júní og ágúst en ekki í júlí.
* Úttekt gerð kl. 14.50 þann 13. maí 2015. Leitað samtímis hjá báðum aðilum. Flug báðar leiðir með sköttum og gjöldum. Lægsta verð í hverjum mánuði fyrir sig. Hafa skal hugfast að verð breytist ört á bókunarvefum flugfélaga.







