Það er himinn og haf milli þess að horfa á heimsmeistarakeppnina í knattspyrnu í sjónvarpi og að vera raunverulega á staðnum þar sem leikirnir fara fram. En fjandi góður millivegur er Íslandsbryggja í Kaupmannahöfn.

Íslandsbryggja í Köben er einn af betri stöðum til að fylgjast með HM og upplifa stemmingu þrátt fyrir allt. Mynd Jonas Smith
Allir mætir Íslendingar eiga vitaskuld að þekkja Íslandsbryggju sem er einn af fáum þekktum stöðum í þessari fínu borg þar sem vísun er til Íslands. Þess vegna ætlum við ekki einu sinni að nefna hvar hún er. Það áttu að vita 😉
Og hvað er svo merkilegt við Íslandsbryggju þessa dagana?
Nefninlega það að danska ríkisútvarpið hefur sett upp hreint frábært HM svæði nákvæmlega þar og þar fara fram útsendingar þess danska milli leikja í Brasilíu.
Hér er krökkt af fólki að fylgjast með útsendingunni sjálfri, allir leikir HM á risaskjám, flögg og fánar og bjór og gammeldansk á krana. Ok, kannski ekki gammeldansk.
Allavega æði fínn staður til að taka inn HM-stemmningu án þess að vera í holdi og blóði í Brasilíu







