Við liggur að tafir og seinkanir séu að verða fastur þáttur í starfsemi Icelandair. Þennan daginn, 16. september, er þriggja stunda seinkun á ferðum flugfélagsins til og frá Kaupmannahöfn.

Mögulega 60 þúsund krónur í vasa þeirra sem flug eiga til eða frá Kaupmannahöfn með Icelandair.

Mögulega 60 þúsund krónur í vasa þeirra sem flug eiga til eða frá Kaupmannahöfn með Icelandair.

Það auðvitað miður fyrir farþega flugfélagsins en við þessar aðstæður er um að gera að leggja þriggja stunda múrinn á minnið. Það skapast nefninlega bótaábyrgð til handa farþegum ef seinkun er lengri en þrjár stundir. Þá eiga samkvæmt Evrópureglum nokkrir tugir þúsundkalla að falla þeim í skaut.

Ítrekum við fólk að standa á sínu og bera sig eftir hlutunum. Alltof margir nenna ekki að eltast við það sem fólk telur einhverjar smánarbætur vegna tafa. Raunin hins vegar sú að þriggja stund töf til eða frá Köben þýðir tæplega 58 þúsund kall í vasann miðað við gengi dagsins. Fyrir þorra almennings er það dágóð upphæð.