Hvað svo sem forsvarsmönnum flugfélagsins Iceland Express finnst um afhjúpun ritstjórnar Fararheill.is á því að óvíða í flugheimum séu tafir meiri en hjá hinu íslenska flugfélagi þykir ritstjórn nú sannað að sú umfjöllun var kórrétt.
Ritstjórn hefur um vikutíma haldið utan um lendingartíma flugfélagsins á Keflavíkurflugvelli og líkt og erlenda tölfræðin sýnir fram á er það veruleg undantekning ef vélar félagsins lenda þar á réttum tíma frekar en erlendis. Sýnir þessi viku stikkprufa að aðeins þrívegis í alls 21 flugi félagsins náðist að lenda á innan við tíu mínútum frá áætlun. Tafir eru því venjan en ekki undantekning hjá flugfélaginu þó öðru sé haldið fram.
Lendingartölfræði Iceland Express í Keflavík eftirfarandi síðustu vikuna:
27. október
AEU362 Oslo Gardermoen. Áætlun 19:15 – Lending 22:42 – Töf: 3 klst. og 27 mínútur
AEU502 London Gatwick. Áætlun 13:50 – Lending 14:20 – Töf: 30 mínútur
28. október
AEU834 Tenerife Sur. Áætlun 00:50 – Lending 01:46 – Töf: 56 mínútur
AEU502 London Gatwick. Áætlun 13:50 – Lending 13:55 – Töf: 5 mínútur
AEU902 Copenhagen. Áætlun 14:10 – Lending 14:35 – Töf 25 mínútur
29. október
AEU184 Alicante. Áætlun 01:00 – Lending 01:03 – Töf: 3 mínútur
AEU414 New York Newark Liberty Intl. Áætlun 05:50 – Lending 06:01 – Töf: 11 mínútur
AEU502 London Gatwick. Áætlun 13:50 – Lending 14:48 – Töf: 58 mínútur
AEU902 Copenhagen. Áætlun 14:10 – Lending 14:35 – Töf: 25 mínútur
AEU154 London Stansted. Áætlun 22:25 – Lending 22:40 – Töf 15 mínútur
AEU134 Berlin Schoenefeld. Áætlun 22:25 – Lending 23:28 – Töf: 1 klst. og 3 mínútur
30. október
AEU502 London Gatwick. Áætlun 13:50 – Lending 13:57 – Töf: 7 mínútur
AEU278 Warsaw. Áætlun 15:40 – Lending 16:26 – Töf: 46 mínútur
31. október
AEU504 London Gatwick. Áætlun 22:25 – Lending 22:44 – Töf: 19 mínútur
AEU904 Copenhagen. Áætlun 22:50 – Lending 23:42 – Töf: 52 mínútur
1. nóvember
AEU502 London Gatwick. Áætlun 13:50 – Lending 14:20 – Töf: 30 mínútur
AEU902 Copenhagen. Áætlun 14:10 – Lending 14:30 – Töf: 20 mínútur
AEU134 Berlin Schoenefeld. Áætlun 22:25 – Lending 23:00 – Töf: 35 mínútur
2. nóvember
AEU414 New York Newark Liberty Intl. Áætlun 05:00 – Lending 06:50 – Töf: 1 klst. og 50 mínútur
AEU502 London Gatwick. Áætlun 13:50 – Lending 14:58 – Töf: 1 klst. og 6 mínútur
AEU902 Copenhagen. Áætlun 14:10 – Lending 15:15 – Töf: 1 klst. og 5 mínútur






