Fyrir marga er hún er æði heillandi páskasigling Vita ferða um Persaflóann frá glysborginni Dubaí til Óman og aftur til Dubaí. Þar er um sjö daga siglingu að ræða á glæsilegu fleyi plús ágæta kynningu á Dubaí áður en haldið er af stað. Í þessari ferð er nákvæmlega ekkert annað að gera alla vikuna en draga andann djúpt og njóta lífsins í þaula.
Það ber að virða Vita fyrir að bjóða slíkar ferðir fjarri heimahögum og bjóða annað en þær siglingar um Karabíska hafið sem einokað hafa að mestu framboðið héðan undanfarin ár. Engin spurning er um að slík ferð um páska þegar hér heima er enn föl á fjöllum og föl á kinnum og fólk langþreytt á vetri konungi er þess virði.
Vita býður þessa ferð á 877.600 krónur miðað við tvo saman í gluggalausri káetu um borð í Serenade of the Seas.
En hvað myndir þú gera ef þú gætir komist í nákvæmlega sömu ferð eða því sem næst fyrir 530.000 krónur?
Það er nefninlega vel hægt svo lengi sem fólk treystir sér til að fara slíka ferð án íslensks fararstjóra.
Hartnær nákvæmlega eins ferð rúmum mánuði áður en farþegar Vita stíga um borð í marsmánuði er nú í boði hjá breskri ferðaskrifstofu á 214 þúsund krónur á mann. Sé bætt við 80 þúsund krónum fyrir flugið til og frá London fyrir tvo auk 20 þúsund króna í annan aukakostnað stendur verðmiðinn í 530 þúsund krónum eða 348 þúsund krónum ódýrara en Vita býður.
Munurinn á ferðunum tveimur er að enginn er íslenskur fararstjóri, flogið er frá Kaupmannahöfn með Vita en frá London með þeirri bresku auk þess sem hálfs dags skoðunarferð um Dubaí er innifalin í íslensku ferðinni. Þá er þjórfé ekki innifalið í ferð Bretanna en í ódýrustu káetu er gert ráð fyrir 1.200 krónu þjórfé á mann hvern dag á umræddu skipi.
Að öðru leyti eru ferðirnar eins. Sama skip, sama þjónusta en breska ferðin er í boði þann 8. febrúar en ferð Vita 22. mars.
Hér geturðu lesið allt um bresku ferðina. Hér um ferð Vita og hér er vegvísir um Dubaí sem ritstjórn Fararheill hefur heimsótt oftar en einu sinni.






