Þegar þetta er skrifað eru rétt rúmir þrír sólarhringar þangað til svo gæti farið að stór hluti opinberrar þjónustu í Bandaríkjunum verði annaðhvort skert til muna eða alveg. Verði það raunin gæti ferðin til landsins orðið aðeins öðruvísi en þú áttir von á.

National Mall í Washington D.C. Hér gæti allt lokast á næstunni.

National Mall í Washington D.C. Hér gæti allt lokast á næstunni.

Bandaríkjaþing er í blindgötu hvað varðar að staðfesta fjárlagafrumvarp landsins og hefur aftur og aftur velt vandanum á undan sér. Líkt og snjóbolti niður brekku hleður slíkt utan á sig og þó einhverjar líkur séu taldar á að enn einu sinni verði vandanum frestað tímabundið telja blaðamenn sem með pólitík vestanhafs fylgjast afar litlar líkur á því. Líkurnar þykja mun meiri að samkomulag náist ekki sem mun þýða að strax þriðjudaginn 1. október mun þriðjungur ríkisstarfsmanna í landinu ekki mæta til vinnu.

Og hvað hefur það með þig að gera?

Lögum samkvæmt fellur niður öll opinber þjónusta sem ekki er talin algerlega ómissandi. Á mannamáli þýðir það meðal annars að flugumferðarstjórar munu starfa áfram. Þú kemst því alveg til og frá landinu. En gerðu ráð fyrir að vera töluvert lengur gegnum toll, öryggisleit eða við töskufæribandið enda fækkar þeim starfsmönnum verulega sem og öðrum opinberum flugvallarstarfsmönnum hjá þeim völlum sem eru í opinberri eigu.

Öllum söfnum sem rekin eru af opinberu fé verður lokað. Það sleppur kannski víða þó súrt sé en þó síst í Washington D.C. Þar má heita að allt svæðið sem þekkt er sem National Mall verði lokað. Þar með talin allra frægustu söfnin á borð við Smithsonian.

Þjóðgarðar margir munu loka og því engin leið að sjá Yosemite, Yellowstone, Channel Islands, Dauðadalinn í Kaliforníu eða Fenjasvæðin í Everglades svo dæmi séu tekin.

Fararheill undrast að eini söluaðili ferða héðan til Bandaríkjanna, Icelandair, sér enga ástæðu til að láta viðskiptavini sína vita af þessari hugsanlegu stöðu. Flokkast það kannski ekki undir góða þjónustu að láta vita af slíku? Eða kemur til greina að endurgreiða ferðir fólks til Washington ef það kemur að öllum helstu söfnum lokuðum og læstum.