Einhver gæti í einfeldni sinni haldið að ódýrasta leiðin til að komast til Los Angeles í Kaliforníu frá Íslandi væri með Delta Airlines, Wow Air eða Icelandair vestur um haf og þaðan áfram. Það er ekki endilega svo.
Raunar fjarri því í stöku tilfellum en það liggur alls ekki í augum uppi enda vonlaust að setja fingur á hvernig flugfélög heimsins verðsetja flug og ferðir þessa síðustu og verstu.

Frá Osló til L.A. í febrúar fyrir 53.649 krónur fram og aftur.
Það dytti kannski engum sérstaklega í hug að það væri rúmlega helmingi ódýrara að fljúga til Osló, frá Osló til Frankfurt og þaðan alla leið til Los Angeles en að fljúga beint vestur um haf héðan og svo áfram þaðan. Það er samt raunin eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskoti. Þar er annars vegar flug fram og aftur með Icelandair og Alaska Airlines og hins vegar flug fram og aftur frá Osló í Noregi gegnum Frankfurt í febrúar á næsta ári.
Verðmismunurinn reynist vera rúmlega 63 þúsund krónur fyrir einn fram og aftur.
Í þessu tilfelli gæti það borgað sig duglega að fljúga til Noregs og þaðan til L.A. en að bóka hjá Icelandair. Flugfargjöld til Oslóar í byrjun árs fást líka niður í tíu til fimmtán þúsund krónur báðar leiðir. Með þeim hætti sparar viðkomandi tæplega 50 þúsund á fluginu en er auðvitað aðeins lengur á leiðinni í heildina.

En líka hægt að fljúga sem beinast héðan og greiða 122.500 krónur fram og aftur.
Þetta dæmi aðeins eitt af mörgum um þá forarvilpu sem fargjaldaheimur flugfélaga er orðinn. Heim þar sem lengri leið og sem flest tengiflug skila oftar en ekki lægra verði á lengri flugleiðum en fljúga þráðbeint.
Ástæða til að hafa augun hjá sér. Það er lítil eðlilegt við að lengra flug sé rúmlega 70 þúsund krónum ódýrara en hitt.







