Lesandi skaut að okkur spurningu hvort virkilega væri ekki hægt að njóta strandlífs í Antalya í Tyrklandi í júlí eða ágúst undir hálfri milljón króna sem er algengt verð á tveggja vikna pakkaferðum Nazar til borgarinnar. Svarið við því er vitaskuld að allt er hægt.

Alltaf hægt að gera betur en það kostar smá vinnu.
Fararheill fór á stúfanna vegna þessa og við lentum að lokum á fínum tveggja vikna pakka frá 25. júlí þar sem gist er á fimm stjörnu topphóteli en án matar. Flogið með Norwegian frá Osló til Antalya og til baka til Osló með töskur meðferðis og sömuleiðis til Osló og frá með Icelandair þar sem taska er einnig með í för.
Slíkur ferðamáti sparar hjónakornum eða tveimur vinum rúmlega 200 þúsund krónur en þessi pakki fæst þegar þetta er skrifað niður í 299 þúsund krónur alls fyrir tvo.
Hvernig fórum við þessu?
A) Við leituðum uppi lægstu fargjöld lággjaldaflugfélagsins Norwegian frá Osló en við vitum að það flugfélag flýgur
reglulega til Antalya. Þar fundum við flug 25. júlí og aftur til baka 9. ágúst fyrir 2.886 NOK sem eru 43.300 krónur íslenskar krónur miðað við gengi dagsins. Sem sagt flug fyrir tvo fram og aftur frá Osló kostar rúmar 86 þúsund krónur og við völdum fargjald með 20 kílóa tösku meðferðis eða svokallað LowFare+ fargjald.
B) Þá var förinni haldið á hótelbókunarvef okkar sem finnst hér að neðan. Þar leituðum við að gistingu í Antalya á þessu tímabili og duttum þar niður á fantagott súpertilboð á fimm stjörnu Crowne Plaza hótelinu. Þar kostar dvöl fyrir tvo þennan tíma 148 þúsund krónur. Ekkert innifalið nema herbergið en ástæða þess að við veljum ekki
morgumverð einfaldlega sú að það kostar drjúgt og okkur persónulega þykir alltaf ljúfara að bregða okkur á næsta kaffihús í morgunverð. Slíku má þó bæta í pakkann og kostar þá um 20 þúsund á haus.
C) Síðasta púslið var svo að finna ódýrt flug til og frá Osló og það auðfundið. Icelandair flýgur á passlegum tíma milli Keflavíkur og Osló og það kostar manninn rétt rúmar 32 þúsund krónur eða 65 þúsund samtals.
Niðurstaðan því sú að dúllerísdvöl í Antalya í Tyrklandi á háannatíma í júlí og ágúst þarf ekki að kosta par meira en 299 þúsund krónur plús klink til eða frá. Sem er þetta 200 þúsund krónum lægra verð en finnst lægst hjá Nazar fyrir betra hótel á þessum tíma. Þó verður að hafa í huga að með Nazar flýgur fólk beint á staðinn og matur oft innifalinn.
Þá skal og hafa í huga að flugfargjöld sérstaklega hoppa upp og jafnvel niður á augabragði. Öll verð kórrétt miðað við miðgengi dagsins kl. 10.00 þann 23. febrúar 2016.







