Í næstu viku kemur út nýjasta útgáfa hinnar frægu Michelin-handbókar og með slíka bók við hönd er leikur einn að fletta upp þeim 619 veitingastöðum sem Frakkarnir telja fremsta jafninga. Eða þú getur bara skoðað kortið hér hjá okkur 🙂

Stórstjarnan í veitingabransanum í Frakklandi er Le 1947.
Auðvitað er lítið varið í ferðalög ef fólk gerir ekki vel við sig inn á milli og stopp á Michelin veitingahúsi er sannarlega trít fyrir okkur flest. En það getur kostað drjúgt svo vægt sér að orði komist. Reiknað hefur verið út að MEÐALVERÐ á þriggja rétta máltíð fyrir EINN á hinum víðfræga þriggja stjörnu Le 1947 í Courchevel fyrir utan drykki eru litlar 52 þúsund krónur. Á móti kemur að ódýrasta máltíðin á Michelin-stað í Frakklandi er hádegisverður á hinum litla Auberge Tiegezh í smábænum Guer. Þar kostar magafylli tæpar þrjú þúsund krónur á mann.
Nóg um það. Ef þú finnur þig á flakki um Frakkland og vilt fá eftirminnilegan mat kemur þessi vefsíða til góða. Þar finnurðu alla 619 Michelin veitingastaðina í Frakklandi árið 2018. Bon appetit.







