Jamm og jæja! Enn eitt árið tekur hótelbókunarvefur Fararheill gullverðlaun á World Travel Awards í flokki hótelbókunarvéla.

Hótelbókunarvefur sem vinnur gullverðlaun þrjú ár í röð hlýtur að vera að gera góða hluti 🙂
Það gerir hann að SEXFÖLDUM heimsmeistara og ekki er samkeppnin af skornum skammt neitt. Þvert á móti, nýjar hótelbókunarvélar sjá dagsins ljós nánast á hverjum einasta degi.
Við þurfum ekkert að segja þeim er prófað hafa hvers vegna HotelsCombined er þrefaldur heimsmeistari. Aðrir verða að gjöra svo vel og prófa. Kannski hjálpar upp á sakirnar að vefurinn sá leitar að gistingu á allt að þrefalt fleiri hótelum og gististöðum en til dæmis hinn frægi Booking. Yfirleitt finnum við líka lægra verð á gistingu en sami frægi Booking.
Ef þú fæddist með gullskeið í rassi skiptir þetta engu máli. En ef þú ert ósköp venjuleg manneskja á ósköp venjulegum launum margborgar sig að bóka hjá okkur. Og hananú.







