Fátt er ömurlegra í flugi, þar sem yfirleitt er alltaf þröngt um fólk, en að lenda við hlið feitlaginna sem þurfa í raun meira pláss en eitt einasta sæti til að vel fari um alla.

Eitt flugfélag sem virkilega kemur vel fram við ALLA.

Eitt flugfélag sem virkilega kemur vel fram við ALLA.

Það er miður fyrir þá sem við hlið þeirra sitja því feitlagnir þrengja enn meira að farþegum þar sem þegar er þröngt fyrir en ekki síður bagalegt fyrir feitlagið fólk sem oft á tíðum skammast sín fyrir stærðina og vildi gjarnan ekki þurfa að troðast yfir í sætin við hliðina.

Þau eru til flugfélögin sem eru mjög meðvituð um óþægindin sem af slíku getur stafað fyrir alla og sum ganga ansi langt til að gera vel við alla. Í það minnsta koma í veg fyrir að viðskiptavinum líði illa.

Sér á parti þar er líklega Air Canada en þar er það regla að sé farþegi yfir ákveðinni þyngd fær viðkomandi sjálfkrafa autt sæti sér við hlið án þess að þurfa að greiða neitt aukalega fyrir. Þar er nefninlega litið svo á að offita sér heilsufarsvandamál og því beri að koma fram við þá einstaklinga sem sjúklinga.

Það leysir vandamál þeirra sem virkilega þurfa stærðarinnar vegna meira pláss en eitt einasta sæti og líka hinna sem ekki þurfa að sætta sig við slíkt. Báðir aðilar sáttir og ánægja um borð meiri.

Auðvitað er ekkert ókeypis í þessum heimi og flugfélagið deilir kostnaðinum vegna þessa á fargjöld sín yfir línuna en í öllu falli er hér komið fram við alla af virðingu. Feitlagnir njóta meira næðis og fá meira og stundum nauðsynlegt pláss. Og hinir mjórri líka. Allir vinna. Og vert að hafa bak eyra, sért þú með spik um allt, að Air Canada mun sumarið 2017 fljúga beint til Íslands frá Kanada.