Fjórða árið í röð er Algarve-hérað Portúgal það svæði þar sem peningar ferðafólks endast lengst og best samkvæmt árlegri og áreiðanlegri úttekt bresku póstþjónustunnar.

Enn og aftur er ódýrast að dvelja á Algarve í Portúgal samkvæmt nýrri úttekt.

Sú úttekt tekur saman í eina körfu ýmislegt það sem velflestir, ef ekki allir, ferðalangar eyða peningum í reglulega á sólarströndum. Vatnsflaska, gos, bjór, rauðvín, kvöldverður og sólarvörn í þeirri körfu svo fátt sé talið.

Karfan sú kostar að meðaltali 4.061 krónu í bæjum Algarve en það er Sunny Beach í Búlgaríu sem næst kemur Algarve en þar kostar sama karfan 4.627 krónur.

Til að gera sér grein fyrir hversu billegt er að dvelja og lifa á Algarve ætti að nægja að benda á að sama ofangreinda karfa kostar 7.340 krónur í Búdapest í Ungverjalandi en Búdapest er ein allra, allra ódýrasta borg Evrópu og enginn Íslendingur stígur niður fæti þar án þess að missa sig yfir lágu verðlagi á öllu hlutum. Til að hamra heim þann sannleik er líka hægt að tiltaka verð á körfunni í Cancún í Mexíkó, sem oft er nefndur sem ódýrasti sólaráfangstaðurinn fyrir Kanann. Karfan fræga kostar þar að meðaltali 9.177 krónur miðað við gengi dagsins.

Hástökkvari ársins, ef svo má að orði komast, er Costa del Sol á Spáni en þar hefur karfan fræga lækkað milli ára um tæp tíu prósent og þar fæst ofantalið að meðaltali fyrir 5.389 krónur eða svo. Samt 1.300 krónum dýrara en á Algarve.

Bættu um betur og brúkaðu hótelleitarvél okkar hér að neðan. Hún er ekki FIMMFALDUR HEIMSMEISTARI fyrir ekki neitt 🙂