Allir þeir sem leggja leið sína til Spánar ættu að leggja við hlustir. Eða sperra augun í þessu tilfelli. Fjölmargir gististaðir á Spáni fá sérstaklega greitt fyrir að senda veikt fólk til tiltekinna einkarekinna spítala og lækna.

Læknar og sjúkrahús ávallt góð lausn þegar kvilli gerir vart við sig. En ekki hvaða læknir og sjúkrahús sem er…

Jamm, alltaf gaman að kapítalismanum. Engum á að koma á óvart að einkarekin sjúkrahús og læknastofur greiða stærri hótelum og gististöðum Spánar hlut af ágóðanum ef ferðafólk er sent þangað í staðinn fyrir sjúkrahús sem rekin eru fyrir opinbert fé.

Enginn hóteleigandi að segja nei við aukaseðlum fyrir að veita gestum sínum þjónustu. Og fáir hóteleigendur með áhyggjur af stórauknum kostnaði gesta sinna vegna læknisaðstoðar á einkareknu sjúkrahúsi.

Það er nefninlega svo að almennar ferðatryggingar fólks, svo ekki sé talað um sjúkratryggingar kortafyrirtækjanna, dekka alls ekki ferðir á einkarekin sjúkrahús erlendis. Einfaldlega vegna þess að kostnaður þeirra umfram opinbera heilbrigðisþjónustu er margfaldur og ekkert fyrirtæki er að blæða meira en brýnasta þörf er á hverju sinni.

Þetta merkir að mæli hótelstjóri eða hótelstarfsfólk með tilteknum lækni og eða sjúkrahúsi ef veikindi sækja að í fríinu er kjörið að gúggla pínulítið áður en hóað er í leigara og húrrað beint á staðinn. Gúgglið getuð sparað tug- eða hundruðir þúsunda króna ef staðurinn sem um ræðir er einkarekið batterí en ekki opinbert sjúkrahús eða stofnun.

Það hljómar kannski fáranlega ef eiginkonan eða dóttirin er æpandi af kvölum að hringja í kortafyrirtækið heima á klakanum en slíkt gæti margborgað sig áður en dúndrast er af stað í hvelli á sjúkrahús sem hótelið mælir með. Þannig færðu að vita á augabragði, eða því sem næst, hvort kortatrygging dekkar þjónustu á viðkomandi sjúkrahúsi eða neyðarmóttöku.

Ella gæti ferðalagið kostar fleiri hundruð þúsund krónum meira en gert var ráð fyrir í upphafi…